Skálmöld : Vögguvísur Yggdrasils

Folk Metal / Islande
(2016 - Napalm Records (AUT))
En savoir plus

Les paroles


1. MÚSPELL

Kvika streymir og kraftar losna,
Klettar brenna.
Barnið dreymir en taugar trosna,
Tárin renna.
Bráðna steinar og bergið flýtur,
Brostnir draummar.
Ljósið veinar og loginn hvítur,
Landið kraumar.

Bálið sem veldur bardögum
Bjarma á kveldið kastar.
Surtur fer heldur hamförum,
Hér sefur eldur fastar.

Jötnar æða um jörð í molum.
Jöklar gráta.
Ísinn bræða á æstum kolum.
Æpir hnáta.
Móðir huggar þar mædda dóttur.
Múspall fagnar.
Dansa skuggar er dofnar þróttur.
Dagur þagnar.

Þú deyrð í nótt!

Himinninn er hulinn sóti,
Hraunið rennur okkur móti.
Svartnætti til allra átta,
Illt er myrkur Múspellsnátta.

Finnum hvernig fætur svíða,
Feigir eftir okkur bíða.
Saman munum lífið láta,
Gítil rödd er hætt að gráta.

Ryðst úr sprungum, gjám og gjótum
Gríðarbál í risafljótum.
Loki gefur lausan tauminn,
Leikur sér við stríðan strauminn.

Liggjum við á litlu skeri,
Lyftist glóðin nær.
Sárt að hérna beinin beri
Barnung dóttir kær.

Loks ég finn að lítill skrokkur
Lætur eftir sitt.
Hraunið breiðir yfir okkur,
Elsku barnið mitt.


2. NIFLHEIMUR

Sem vetur konungur í klakahelli,
Út liðast Níðhöggur á Nábítsvelli
Hrímþursar fylgja með á svörtu svelli

Blikandi norðurljós á Niflheimsþaki,
þrúgandi þögnin heldur traustataki
Já, hér er ekkert nema kyrrð og klaki

Þennan stað hýsir þjáningin,
þursarnir vísast kaldir
Heimurinn frýs við himininn,
Hér sefur ís um aldir

Þursarnir væla meðan vindar gnauða
Og rokið skilur eftir skika auða
Ísinn er sprunginn og hann spúir dauða

Sofðu. Sofðu.

Í lofti þokkafullar þokuslæður
Hér er það ísinn sem að ríkjum ræður
Hér deyja mennirnir og Múspellsbræður

Sofðu. Sofðu.

Nýr dagur rís
Hér sefur ís

Niflheimahliðin, þar fordæmdur fer
Dagur er risinn en dimmt hvar sem er
Dóttir mín litla, hvað gerði ég þér?

Þá gýs úr Hvergelmi með ógn og ótta
Og þar með leggja allir lífs á flótta
Það birtir ekki Nifls- á milli nótta

Sofðu. Sofðu.

Þar svífur vætturin á vængjum þöndum.
Við erum fönguð þar sem fátæk stöndum
Og bundin kyrfilega klakaböndum

Sofðu. Sofðu.

Nýr dagur rís.
Hér sefur ís.

Léttir það varð þegar dóttir mín dó,
Sofðu sem fastast og finndu þér ró,
Faðmur minn verndar frá kulda og snjó


3. NIÐAVELLIR

Niðavellir, náhvítur máninn skín.
Dvergahellir, dulúð þér villir sýn.
Sindradætur, synir og börnin öll,
Vetrarnætur, verma þau klettafjöll.

Aðrir byggja hús og hallir, kastala og kofa.
Komið inn í hellinn því að hér, hér er gott að sofa.

Galdrastafir, grafnir í stóran stein,
Dvergagrafir, dysjar og gömul bein.
Heljarstyrkur, hertekur djúpan dal.
Niðamyrkur, nær inn í gullinn sal.

Leggist niður börnin mín, já, stór er okkar stofa.
Steingólfið er tandurhreint og hér, hér er gott að sofa.

Trónir á mergi tinnugler,
Tindar úr bergi háir.
Sindri og Hergill halla sér,
Hér sofa dvergar gráir.

Heyr, mín kæra hefðarfrú,
Hér er gott að sofa.
Á sig taka náðir nú,
Niðahjón og börnin þrjú.

Þegar heyrist þrumugnýr,
Þór við skulum lofa.
Okkur geymir hellir hlýr,
Hér er gott að sofa.

Náinn syngur næturljóð,
Núna sefur dvergaþjóð.


4. MIÐGARÐUR

Manstu hvað gerðist í Miðgarði þá?
Ég sá, ég sá
Margt fyrir löngu var búið til lag,
Ljóðið svo skrautlega skrifað
Hetju sem barðist við vængjaða vá?
Ég sá, ég sá
Baldur sem barðist af drengskap þann dag,
Dó svo að við gætum lifað

Vafrandi enn um hrollkalt hraun,
Hrakin sig glennir vofa
Hitinn frá brennu huggar raun,
Hér sofa menn í kofa

Kvöld úr norðri, kalt í hlíðum,
Knýr að dyrum myrkrið svart
Þolinmóð við þannig bíðum
þess að verði aftur bjart

Traustur máttur réttra rúna
Róar geð er vindur hvín
Sorgir allar sefast núna,
Sofðu, unga ástin mín


5. ÚTGARÐUR

Ró yfir röstum
Ró yfir þröstum
Ró yfir höllum
Ró yfir gjöllum
Ró yfir töngum
Ró yfir dröngum
Ró yfir hjöllum
Ró yfir stöllum

Vöknum seint og sjáum
sól á himni bláum
Ef að líkum lætur
Leggjum við upp í ferðalag
Föngum ferðalanga,
Fyllum maga svanga,
Leggjumst sæl og síðan
Sofum við fram á næsta dag

Ró yfir jötnum
Ró yfir vötnum
Ró yfir fjöllum
Ró yfir völlum
Ró yfir stjörnum
Ró yfir börnum
Ró yfir tröllum
Ró yfir öllum

Förum seint að sofa
Sátt í okkar kofa.
Þó að veður versni
Vöknum alls ekki fyrir því
Þar í hrúgu hrjóta
Hávær börn til fóta,
þau skal ekkert angra,
Æsir, menn eða skúraský

Veggir Útgarðs verja,
Vopnin okkar merja
bæði hjálm og höfuð
Herfylkinga í vígahug
Það er gott og gaman
Grey að drepa saman
Þegar birtu bregður
Bjargast þeir sem að sýna dug

Útgarða- brött er Loka leið,
Liggur um vötn og sveitir,
Hefur þar kött og Hugaskeið,
Hér sofa jötnar feitir

Látum kylfur kremja,
Kinnbein sundur lemja
Drekkum mjöð og mungát,
Meðan höfum við nokkurn þrótt
Síðan brjótum beinin,
Berjum þeim við steininn
Svo við dans og drykkju
Dugum við fram á rauðanótt

Vöknum seint og sjáum
Sól á himni bláum
Ef að líkum lætur
Leggjum við upp í ferðalag
Föngum ferðalanga,
Fyllum maga svanga,
Leggjumst sæl og síðan
Sofum við fram á næsta dag


6. ÁLFHEIMUR

Úti blæs og fjörður frýs,
fimbulvetur ræður
Yfir vakir álfadís,
inni loga glæður

Varúlfs heyrist vígagól,
Vargurinn er óður.
Álfabarn í krömum kjól,
Kúrir sig hjá móður

Hrynja og skjálfa gljúfragil,
Grýta þig bjálfar magrir
Heima þeir sjálfir halda til,
Hér sofa álfar fagrir

Þrumuguðinn skóginn skók,
Skjól er Óðinn lofum
Lesum við á lærða bók,
Leggjumst þar og sofum

Álfabörn í hárri höll,
Heyrist enginn grátur
Ráfa úti risar, tröll
Ráðast álfagátur

Kvöldin brenna kaldar senn,
Kálfsins spenna græðir
Völdin renna aldar enn
Álfsins penna ræðir

Hlýja greiðir hálfa leið,
Harma- sneiðir kveinið
Lýja reiðir álfa eið,
Arma neyðir veinið


7. ÁSGARÐUR

Einherjar streyma frá Iðavelli,
Enginn gaf líf sitt við leikinn í dag
Flétta í dróttkvætt og fornyrðislag,
Fimlegar vísur um Gnipahelli

Þurrka af sverðunum bleksvart blóðið,
Brynjunum kasta í Drekkingarhyl,
Hreinsa og strjúka og hrista svo til
Hungraðir allir, svo inn þeim bjóðið

Glaumurinn berst yfir gang til okkar,
Goðin þar sitja og drekka sinn mjöð
Yggdrasils skýla þér bolur og blöð,
Bardagaherir og stórir flokkar

Þagnaðu, anginn og þægur vertu,
þú ert af ása og konungaætt
Fátt er þar úti sem fær okkur hrætt,
Freyja þín gætir svo hólpinn ertu

Ef ég þessu ljóði lyki
Líklega við heyrðum köll
Horfir hann frá Breiðabliki,
Baldur, yfir okkur öll

Valhallar blæs til vindurinn,
Veinandi hvæs og brestir
Heimdallur læsir hingað inn,
hér sofa æsir mestir

Sofðu nú lengi og sofðu vel,
Sængin er dýrasti dúkur,
– Geymi þig Óðinn og gleymd sé Hel –
Gullsleginn svæfillinn mjúkur
Fegurðin, gáfur og þokki þinn
þykja mér feykinæg borgun
Vættirnar geymi þig, vinur minn,
Við sjáumst aftur á morgun


8. HELHEIMUR

Brakar í jöklum og beinin eru köld,
Blásvart myrkrið öskrar því að nú er komið kvöld
Gjallarbrú trónir og minnir á sinn mátt
Það eru menn þarna úti sem ekkert geta átt

Fordæmdir ýlfra og festa enga ró,
Fingurnir sem eitt sinn bærðust, núna þaktir snjó
Meinað að sofa er myrkrið kæfir þá
Það eru menn þarna úti sem aldrei birtu sjá

Í Hel
Hér sefur enginn vel
Í Hel

Drottningin horfir er dæmdir missa vit,
Dagurinn er horfinn og með barnið mitt ég sit
Tárin þau frjósa er mænir hún á mig
Það eru menn þarna úti sem vilja taka þig

Í Hel.
Hér sefur enginn vel
Í Hel
Í Hel
Hér sefur enginn vel

Lífið víst þráir ljós og yl,
Liggja þar smáir, kaldir,
Horfa þeir bláir Heljar til,
Hér sofa náir kaldir


9. VANAHEIMUR

Vanir vísir (Vanir eru vísir)
Flesta fýsir (Vissu flesta fýsir)
Framtíð finna (Framtíð sína finna)
Sögur sinna (Frægðarsögur sinna.

Forynja banar ferðalang,
Feikn yfir hana rignir.
Hreykir sér svanur hátt á drang,
Hér sofa vanir hyggnir.

Vaknar vorið (Vaknar núna vorið)
Barn er borið (Vanabarn er borið)
Flýgur Freyja (Flýgur yfir Freyja)
Djöflar deyja (Fimbuldjöflar deyja)

Nýtt upphaf þegar Freyju þér ég fel
Og Frigg skal rækta vandað hugarþel.
Hér svala máttu þreytu þinni,
Því segi ég það fyrsta sinni:
Nú blótum við því barnið sefur vel.

Nýr dagur rís og fer svo allt of fljótt.
Kvöld færist yfir, loks er komin nótt.
Hér svala máttu þreytu þinni,
Því segi ég það öðru sinni:
Nú blótum við því barnið sefur rótt.

Nýr kafli hefst og tunglsins skin er skært,
Og skýin hafa hulu sína fært.
Hér svala máttu þreytu þinni,
Því segi ég það þriðja sinni:
Nú blótum við því barnið sefur vært.

paroles ajoutées par darkflo - Modifier ces paroles